05/02/2024
Ég er ótrúlega spennt fyrir að deila með ykkur þekkingu um höfuðverkjasjúkdóma, forvarnir og leiðir til sjálfshjálpar 📚 Sum ykkar þekkja mig þegar, en fyrir þá sem ekki þekkja mig enn - ég heiti Hanna Tómasdóttir og er löggiltur sjúkraþjálfari og osteópati í Danmörku með yfir 27 ára reynslu. Ég er með mastersgráðu í jákvæðri sálfræði frá Árósarháskóla og lýk mastersnámi í höfuðverkjasjúkdómum við Kaupmannahafnarháskóla í júní 2024 ✔️
Draumur minn er að höfuðverkur.is verði þekktur samfélagsmiðill - og eftir nokkra mánuði, einnig vefsíða sem allir sem þjást af höfuðverkjum geta leitað til fyrir faglega þekkingu, leiðsögn og innblástur til sjálfshjálpar 💡
Ég lauk Clinical Course í síðustu viku við Dansk Hovedpinecenter, sem er heimsþekkt stofnun í meðhöndlun höfuðverkja- og fyrir höfuðverkjarannsóknir, staðsett í Glostrup, í útjaðri Kaupmannahafnar. Við erum 22 mastersnemar, flestir eru taugalæknar, en einnig þrír osteópatar, tveir sjúkraþjálfarar, einn hjúkrunarfræðingur og einn lyfjafræðingur, frá 16 mismunandi löndum 🌍
Mastersnám í höfuðverkjasjúkdómum - eða Master in Headache Disorders, sem það heitir, fer fram á ensku, og er tveggja ára framhaldsnám fyrir heilbrigðisstarfsfólk 👩⚕️👨⚕️
Núna er ég að vinna að lokaritgerðinni minni sem fjallar um höfuðverk eftir heilahristing og höfuðhögg - og hvort og hvernig notkun á jákvæðri sálfræði æfingum geti mögulega aukið lífsgæði og leitt til færri höfuðverkjadaga. Fylgist með hér á síðunni og deilið að vild 📢Takk kærlega💙