Afburðaleiðtoginn

Afburðaleiðtoginn Vinnustofur, viðburðir og ráðgjöf til að efla leiðtoga framtíðarinnar með skemmtilegri blöndu úr afburðastjórnun og jógafræðum.

"Sýn, samstarf, sigursæld og sálarkonfekt"

Stjórnunarkerfi snúast ekki bara um stjórnendur, skipurit og ferli.Þau snúast um fólk 🩷Ef kerfi veldur streitu, óöryggi ...
13/02/2026

Stjórnunarkerfi snúast ekki bara um stjórnendur, skipurit og ferli.
Þau snúast um fólk 🩷

Ef kerfi veldur streitu, óöryggi eða ruglingi, þá er eitthvað í ólagi– jafnvel þótt það „uppfylli kröfur“ og búi til "vöru og þjónustu".

Við gleymum stundum að á bak við hvert ferli, hvert verklag og hverja áætlun er manneskja.
Manneskja sem vill standa sig vel.
Manneskja sem vill skilja hvað hún á að gera – og af hverju það skiptir máli.

Stjórnunarkerfi sem leggur áherslu á fólk þýðir til dæmis:

🌿 Að fólkið sem vinnur verkin hafi raunverulegt eignarhald á verklaginu.

🌿 Að umbætur séu samtal – ekki skipun að ofan.

🌿 Að hugmyndir fái athygli og viðbrögð, svo fólk upplifi að það skipti máli.

Þegar kerfi styðja fólk í stað þess að þrýsta á það,
skapast skýrleiki, öryggi og traust.

Og það er þar sem árangur vex.

Afburðir byrja ekki í skjalaskáp eða á stjórnendafundum.
Þeir byrja í menningu þar sem fólki líður vel og fær að taka þátt.

HÆFIR STARFSMENN – ÓHÆFIR STJÓRNENDURÉg hef áralanga starfsreynslu á vinnumarkaði.Allt frá fiskvinnslu og umönnunarstörf...
07/02/2026

HÆFIR STARFSMENN – ÓHÆFIR STJÓRNENDUR

Ég hef áralanga starfsreynslu á vinnumarkaði.

Allt frá fiskvinnslu og umönnunarstörfum yfir í stjórnunarstörf.

Síðustu 11 ár hef ég einnig starfað sjálfstætt með jóganámskeið, vinnustofur og verkefni tengd jóga og leiðtogafærni.

Ég hef kynnst frábærum stjórnendum.
Og einnig þeim sem eru algjörlega óhæfir.

Mig langar að tala um muninn þar á.

Ég hef sjálf starfað í hlutverki með mannaforráð í um 12 ár og einnig rekið eigin starfsemi.

Af þeirri reynslu hef ég lært hvað þarf virkilega til að skila góðu starfi.

Því geri ég kröfur til þeirra stjórnenda sem ég starfa með.

👀

HVAÐ FINNST MÉR EINKENNA GÓÐAN STJÓRNANDA / LEIÐTOGA?

Góður stjórnandi:

– hefur góða yfirsýn og skýra stefnu
– sýnir starfsfólki sínu traust og lætur það finna fyrir því
– býr yfir auðmýkt og samkennd, sérstaklega þegar starfsmenn ganga í gegnum erfiðar lífsreynslur
– stígur inn þegar álag er mikið og hjálpar til, sérstaklega við undirmönnun vegna veikinda
– leyfir fólki að tjá sig og beinir umræðu á uppbyggjandi hátt
– hlustar ekki bara með hausnum, heldur hjartanu
– gleðst yfir styrkleikum starfsmanna og hvetur þau áfram
– styður fólk jafnvel í að prófa eitthvað sem það heldur að það geti ekki
– hefur farið í naflaskoðun og getur tekið gagnrýni til vaxtar

Ef stjórnandi hefur ekki þessa eiginleika, þá finnst mér hann einfaldlega ekki starfi sínu vaxinn.

🌱

ÁBYRGÐIN SEM FYLGIR HLUTVERKI MEÐ MANNAFORRÁÐ

Ég veit að þetta eru kröfur.

En þegar þú tekur að þér hlutverk með mannaforráð, þá berð þú ábyrgð.

Ekki bara á tölum og línulegum vexti.
Heldur á fólki.

Velferð starfsmanna skiptir sköpum fyrir farsælt starf og heilbrigðan rekstur.

Það er ekki aukaatriði.
ÞAÐ ER GRUNNURINN!

⚠️

HVAÐ EINKENNER VANHÆFAN STJÓRNANDA – AÐ MÍNU MATI

Því miður eru vanhæfir stjórnendur víða.

Í störfum mínum, meðal annars með fólki sem kemur í gegnum VIRK, hef ég of oft orðið vitni að algjöru skilningsleysi af hálfu fólks með mannaforráð.

Afleiðingin er sú að mjög hæfu starfsfólki er ýtt út.

Oft vegna þroskaleysis, egós og sjálfhverfu þeirra sem fara með völdin.

Vanhæfur stjórnandi:

– notar starf sitt til að þjóna egóinu sínu
– rottar sig saman með öðrum stjórnendum og skapar pískur, vanlíðan og óöryggi
– beitir gaslýsingu, sem er mannskemmandi hegðun
– sýnir enga samkennd né almenna kurteisi
– getur ekki hvatt eða peppað starfsfólk á jákvæðan hátt
– leggur sig ekki til hliðar þegar breytingar kalla á það

Ef þú sækir um hlutverk með mannaforráð þarftu að geta sýnt styrk á ögurstundu.

Ef þú ert sjálfur að glíma við alvarlegan líkamlegan eða andlegan brest og getur ekki sinnt hlutverki þínu af ábyrgð, þá ber þér að stíga til hliðar, ná jafnvægi eða segja starfi þínu lausu.

🌿

KJARNINN

Góður stjórnandi þarf margt til brunns að bera.

En fyrst og fremst þarf hann að vera tengdur sjálfum sér.
Ekki egóinu, heldur sjálfinu.

Aðeins þannig getur hann stigið inn þegar á reynir.
Staðið með fólkinu sínu.
Og skapað vinnustað þar sem starfsfólk hlakkar til að mæta.

Því illa stýrður vinnustaður verður að drullupolli
sem fólk getur sokkið djúpt ofan í
og jafnvel aldrei stigið upp úr.

💚

LOKAHUGSUN

Kannski væri stundum betra að hafa engan stjórnanda.

Heldur skýr hlutverk frá upphafi.

Þar sem allir vinna fyrir heildina.
Hafa rödd.
Og fá að láta styrkleika sína skýna.

Ekki sækjast í valdastöður til að sýna yfirburði
eða þjóna eigin egói – egói sem byggir oftar en ekki á þroskaleysi og minnimáttarkennd.🌱

🌸 Langar þig í dag sem nærir, slakar og kveikir á gleðinni? 🌸Þá er Jógadekurdagurinn með Rósemd & Rútínu akkúrat fyrir þ...
03/05/2025

🌸 Langar þig í dag sem nærir, slakar og kveikir á gleðinni? 🌸

Þá er Jógadekurdagurinn með Rósemd & Rútínu akkúrat fyrir þig!

🗓 15. júní bjóðum við þér með okkur í dásamlegt sjálfsræktarævintýri – þar sem þú færð að anda, dreyma og njóta í kærleiksríkri og gleðilegri stemningu.

✨ Á dagskránni:
🧘 Mjúkt Yin jóga og Yoga Nidra djúpslökun
🌿 Ikigai sjálfskoðun – hvað kallar á þig?
🌬️ Jarðtenging og gleðiöndun
🥗 Nærandi matur (og smá cacao kærleikur)
🍓 Búbblur (óáfengar að sjálfsögðu) & jarðarber til að fagna lífinu
📖 …og falleg dagbók sem fylgir með Ikigai vinnustofunni!

📍 Við verðum í hlýju og björtu rými á Engjateig 9, Reykjavík 🌿

Þú þarft bara mjúk föt, opið hjarta og kannski jógadýnu og teppi til að kúra undir ✨
Við sjáum um rest – og við lofum að það verður alveg dásamlegt 💛

🎟️ Örfá sæti – smelltu hér og tryggðu þér pláss á gleðidaginn :
👉

Afburðaleiðtoginn - Jógadekurdagur

25/04/2025

Hvað eiga farsælir leiðtogar og jógakennarar sameiginlegt? Meira en þú heldur! 😄
Á námsskeiðum Afburðaleiðtogans tengjum við vísindalega forystu við jógafræði – og hjálpum þér að finna fókus, tilgang og prófa allskonar verkfæri.
Þú færð aðgang að allskonar sjálfsmati, vinnubók og útbýrð þitt eigið plan sem virkar – ekki bara jákvæða hugsun og te með hunangi 🍯 (nema þú viljir það líka).

✨ Komdu á ókeypis Zoom kynningarfund þann 20.apríl – skráðu þig hér:
https://afburdastjornun.mykajabi.com/afburdaleidtoginn_fri_dagbokarsida

23/04/2025

Address

Kópavogur

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Afburðaleiðtoginn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Afburðaleiðtoginn:

Share

Share on Facebook Share on Twitter Share on LinkedIn
Share on Pinterest Share on Reddit Share via Email
Share on WhatsApp Share on Instagram Share on Telegram

Category