GeoSilica Iceland

GeoSilica Iceland GeoSilica framleiðir náttúruleg bætiefni til daglegrar notkunar fyrir endurnýjun líkamans frá toppir

Í síðustu viku heimsótti Fida Abu Libdeh Libdeh, stofnandi og framkvæmdastýra GeoSilica, nemendur í frumkvöðlafræði við ...
05/03/2026

Í síðustu viku heimsótti Fida Abu Libdeh Libdeh, stofnandi og framkvæmdastýra GeoSilica, nemendur í frumkvöðlafræði við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þar sagði hún frá sinni vegferð sem frumkvöðull og stofnun GeoSilica, ásamt því að ræða við nemendur um nýsköpun, sjálfbærni og hugmyndir þeirra.

Það er alltaf sérstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til að hitta ungt fólk sem hefur áhuga á frumkvöðlastarfi og fá að deila reynslu og hvetja næstu kynslóð frumkvöðla áfram. Takk fyrir frábærar móttökur og skemmtilegar umræður 👏
Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Margir af okkar viðskiptavinum hafa verið í áskrift að GeoSilica í mörg ár – og það segir sína sögu 💧 Regluleg notkun sk...
28/02/2026

Margir af okkar viðskiptavinum hafa verið í áskrift að GeoSilica í mörg ár – og það segir sína sögu 💧 Regluleg notkun skiptir máli þegar kemur að því að styðja við liði og bein og ná sem bestum árangri.

Langar þig að fræðast meira?
Kíktu á nýjustu bloggfærsluna okkar um REPAIR og hvernig það getur hjálpað við verki og stirðleika 👇🤩

REPAIR fyrir liði og bein inniheldur kísil ásamt mangan sem að stuðlar að eðlilegri myndun bandvefs og viðhaldi beina. REPAIR hefur slegið í gegn hjá einstaklingum sem að glíma við liðverki og eru í áhættuhóp vegna beinþynningar. Guðrún Karítas hefur verið traustur áskrifand...

"Þetta er eitthvað galdrameðal. Ég hætti snarlega í hárlosi á um tveimur vikum og nú er minna sem losnar líka daglega. É...
25/02/2026

"Þetta er eitthvað galdrameðal. Ég hætti snarlega í hárlosi á um tveimur vikum og nú er minna sem losnar líka daglega. Ég mun aldrei hætta að nota þessa vöru!" - Assa Jónsdóttir 💙 Þú færð þína RENEW fyrir hár, húð og neglur á www.geosilica.is

23/02/2026

Þú finnur reynslusögur á vefsíðu okkar geosilica.is 🩵

Þann 26.febrúar nk. fer fram Nýsköpunarráðstefnan Norðanstormur á vegum Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurl...
23/02/2026

Þann 26.febrúar nk. fer fram Nýsköpunarráðstefnan Norðanstormur á vegum Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra - SSNV þar sem Fida Abu Libdeh mun halda erindi um nýsköpun, uppbyggingu og þróun GeoSilica Iceland.

Þar að auki munu aðrir frumkvöðlar, fjárfestar og fyrirtæki hittast til að fræðast um helstu leiðir til fjármögnunar og vaxtar. Við hvetjum ykkur til að mæta í Menningarhúsið Hof Fimmtudaginn 26.febrúar kl. 09:30-12:00 - skráning fer fram í gegnum linkinn hér að neðan.

Nýsköpunarráðstefnan Norðanstormur, sem haldin er af SSNE og SSNV, fer fram í Hofi á Akureyri 26. febrúar kl. 9:30–12:00, þar munu frumkvöðlar, fjárfestar

💙 Gleðilegan konudag! 🌹Konur byggja. Konur skapa. Konur styðja hver aðra.GeoSilica er stolt kvenknúið fyrirtæki:• Eigand...
22/02/2026

💙 Gleðilegan konudag! 🌹

Konur byggja. Konur skapa. Konur styðja hver aðra.

GeoSilica er stolt kvenknúið fyrirtæki:
• Eigandi fyrirtækisins er kona
• Í dag starfa 5 konur hjá GeoSilica
• Yfir 95% þeirra sem eru í áskrift, eru konur

RENEW fyrir hár, húð og neglur er vinsælasta varan okkar meðal kvenna og frá áramótum hafa selst yfir 220 stykki! Við hjá GeoSilica erum stoltar af því að styðja við heilsu kvenna - að innan sem utan 💧 en líkami kvenna gengur í gegnum ótrúlegar breytingar á lífsleiðinni – hormónasveiflur, meðgöngu, uppbyggingu, álag, breytingaskeið og endurheimt. Munum að stoppa, staldra við og hlúa að sjálfum okkur.

Takk fyrir að vera hluti af okkar vegferð.
www.geosilica.is

20/02/2026

Sendu okkur DM ef þú vilt kóða fyrir þinn mömmuhóp💌

Við minnum á að það er hægt er að fá kísilsteinefnin frá GeoSilica á yfir 30 sölustöðum um land allt og einnig á vefsíðu...
20/02/2026

Við minnum á að það er hægt er að fá kísilsteinefnin frá GeoSilica á yfir 30 sölustöðum um land allt og einnig á vefsíðu okkar www.geosilica.is 🤩

18/02/2026

Giskið nú 😎

„Að hafa gaman og ekki gefast upp“ 💙- svöruðu stúlkurnar frá Keflavík þegar þær voru spurðar hvað skipti mestu máli.Degi...
17/02/2026

„Að hafa gaman og ekki gefast upp“ 💙
- svöruðu stúlkurnar frá Keflavík þegar þær voru spurðar hvað skipti mestu máli.

Degi tvö af GeoSilica mótinu er nú lokið og það hefur verið frábær mæting, mikil gleði og enn meiri stemning ⚽ Það er eitthvað alveg sérstakt við að sjá allar þessar stelpur saman - samstaðan og brosin segja allt sem segja þarf.

Í tilefni dagsins langar okkur að deila með ykkur myndbandi frá mótinu. Andri Már Eggertson, á vegum Dr. Football Podcast, tók upp skemmtilegt myndefni og viðtöl við stelpurnar þar sem þeirra rödd fær að njóta sín 👏

Á mínútu 17:50 ræðir Sólrún, yfirþjálfari yngri flokka kvenna hjá Keflavík, um samstarfið við GeoSilica öll þessi ár, metnaðinn og framtíðarsýnina í starfinu.

Knattspyrnudeild Keflavíkur

GeoSilica mótið fór fram í Keflavík laugardaginn 14. febrúar. Keppt var í sjötta og sjöunda flokki kvenna. Andri Már Eggertsson kíkti á mótið og náði eldhres...

GeoSilica mótið haldið í tíunda sinn! ⚽💙Við hjá GeoSilica Iceland erum stoltur styrktaraðili kvennaknattspyrnunnar í Kef...
16/02/2026

GeoSilica mótið haldið í tíunda sinn! ⚽💙

Við hjá GeoSilica Iceland erum stoltur styrktaraðili kvennaknattspyrnunnar í Keflavík. GeoSilica mótið er haldið ár hvert fyrir stúlkur í 5., 6. og 7. flokki en við leggjum okkur fram við að gera daginn eftirminnilegan fyrir þær allar. Að loknu móti fá stúlkurnar gjöf frá GeoSilica sem tákn um þátttökuna og samstöðu.

Í ár var gjöfin sérstök en stelpurnar fengu sérhönnuð sólmyrkvagleraugu 🌒✨

Sólmyrkvi minnir okkur á að jafnvel þegar skyggir á, þá er ljósið alltaf til staðar. Það er falleg táknmynd fyrir íþróttir - stundum mætum við áskorunum, töpum leik eða þurfum að leggja meira á okkur, en með samstöðu, þrautseigju og sjálfstrausti skínum við aftur.

👉 Næsti almyrkvi á sólu sem sést frá Íslandi verður miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Þetta verður einstök sýning og fyrsti almyrkvi sem Íslendingar sjá frá landi síðan 1954 – þ.e. í yfir 70 ár! 🤩 Við hvetjum því stelpurnar að koma saman og upplifa þennan einstaka viðburð í sameiningu.

Frétt Víkurfrétta um mótið má lesa hér:
https://lnkd.in/e9bxVxRn

Meira um Sólmyrkvann 2026: https://lnkd.in/ekax87cP

Sólmyrkvinn á TikTok: https://lnkd.in/ex95giVp

Sérstaka þakkir fær Sævar Helgi Bragason fyrir að aðstoða okkur við gerð glerauganna og fyrir frábæra þjónustu. Allur ágóði af gleraugnasölunni rennur í fræðsluverkefni fyrir börn og fullorðna um sólmyrkvann og mikilvægi öruggrar áhorfs 😎

Address

Hafnargata 62
Keflavík

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3545713477

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when GeoSilica Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to GeoSilica Iceland:

Share

Share on Facebook Share on Twitter Share on LinkedIn
Share on Pinterest Share on Reddit Share via Email
Share on WhatsApp Share on Instagram Share on Telegram

Our Story

NÁTTÚRULEG ENDURNÝJUN LÍKAMANS Kísilsteinefni GeoSilica er hágæða 100% náttúrulegt steinefni, þróað og framleitt á Íslandi úr jarðhitavatni frá Hellisheiðarvirkjun. Kísilsteinefnið er í vökvaformi, ætlað til inntöku og inniheldur engin skaðleg aukaefni.

NÁTTÚRULEGT

Allar okkar vörur eru hreinar, náttúrulegar og framleiddar á sjálfbæran hátt. Við trúum á framleiðslu og þróun með fullri viðringu fyrir umhverfinu. Við sækjum steinefni djúpt úr iðrum jarðar og skiljum eftir fá fótspor í ferlinu.

ENDURNÝJUN