M a n n G Æ S K A

M a n n G Æ S K A Hjúkrunarfræðingur & fjölskylduráðgjafi með heildræna sýn á líðan. Faglega ráðgjöf.

Stuðningur við einstaklinga og fjölskyldur í gegnum breytingar, álag og lífsáskoranir með nærveru, hlýju og manngæsku að leiðarljósi.

01/10/2024

Kæru fylgjendur :)
Núna eru komin rúm 2 ár síðan ég ákvað að flytja til Tenerife og bjóða uppá hjúkrunarþjónustu. Þessi ár hafa verið mjög lærdómsrík og skemmtileg. Búin að kynnast ýmsu, annarri menningu, heitarar loftslagi, fékk mér ,,vespu" sem tók mig nokkrar vikur að manna mig uppí að nota sem tókst en litlu seinna stolið.
Ég sem er 51 árs ,,sumarstelpa" elska náttúruna en kuldinn og myrkrið á Íslandi er mér stundum um megn. 4ra barna móðurinn og hundaeigandinn sem skyldi allt eftir á Íslandi og fór að búa ein í nýju landi, það reyndi á ýmislegt en helst fann ég fyrir einmannaleika. Einhverntímann þegar yngsta dóttur mín spurði hvernig ég hefði það sagði ég við hana:
,, Ég skil ekkert í mér! Ég sem er búin að ganga með ykkur (börnin mín) í 4x9 mánuði, vera með ykkur á brjósti í samtals rúm 3 ár og kaupa mér hund á 300 þúsund sem ég sakna mikið, ég sit svo ein í sólinni hérna"

Á þessum 2 árum hef ég kynnst svo mörgu fólki og það besta er að geta aðstoðað fólk þegar það um sárt að binda. Þegar ég sé þakklætið frá fólki þá veit ég að ég er að gera rétt og að geta kallað mig ,hjúkrunarfræðing" (hjúkrunarkonu eða hjúkku ;)) gerir mig stolta og það eina sem mig langar að starfa við.
Þegar ég ákvað að flytja til Tenerife þurfti ég að lifa á öðru en sólinni, þannig að ég réði mig hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og svaraði netspjalli heilsuveru og 1700. En af því að ég er svona ,,people person" þá vantaði mig að vera meiri í samskiptum við fólk, það var ekki nóg fyrir mig að tala einungis í síma í 4-6 klst á dag og gefa af mér, það ,,drenaði mig" og að lokum fékk ég nóg af því og varð að hætta að starfa þar.
Varðandi starfsemi mína á Tenerife þá tók það mig svolítinn tíma að finna út hvað ég ætti að rukka fyrir þjónustu mína, þar sem fólk þurfti mest megnis að fá ráðgjöf og stuðning í gegnum síma eða netið þá varð ég að setja verð á það, þar sem ég er ekki í vinnu hjá neinum nema sjálfri mér, var hér um bil hægt að hringja í mig jafnt að nóttu og um hábjartan dag. Þar sem ég er fyrst og fremst hjúkrunarfræðingur en hef ekki verið mikið í markaðsfræðum þá tók það svolítið á, þ.e.a.s. að verðleggja mig en að lokum fann ég út úr því. Sumum fannst þetta verð sanngjarnt einhverjum of lítið en öðrum of dýrt, þannig er það bara :)
Langflestir borguðu með bros af vör og vildu jafnvel borga meira. Þeir sem leituðu eftir því fengu greitt til baka frá tryggingfélagi sínu (samkv.mínum uppl.). En það voru því miður of margir sem kusu að greiða ekki reikingana sem ég sendi á þá, er það ein helsta ástæða þess að ég sé mér ekki fært að bjóða uppá þessa þjónustu.
Þegar ég ákvað að fara út í þetta var ég ekki viss hvort það væri þörf fyrir þjónustu sem þessa en eftir þennan tíma er ég sannfærð um það. Ég hef mikila reynslu og á auðvelt með að meta aðstæður, sjá hvert best er að leita eða hvort viðkomandi þurfi að leita til læknins, á læknastofu eða á sjúkrahús eða jafnvel eitthvert annað. Þetta er búið að vera yndislegur tími og ég sé ekki eftir neinu, ég ákvað að prufa þetta og er reynslunni ríkari. En núna hætti ég stolt og sátt en með ,,poquito"(smá) sorg í hjarta því að ,,Hjúkrunarfræðingur á Tenerife" er eitt af börnunum mínu ;)

Mig langar að þakka öllum sem studdu mig í þessari vegferð og sérstaklega því yndislega fólki sem leitaði til mín. Farið vel með ykkur, elsku þið.
Með hlýju Svana Andrea

07/08/2024

Mig langar að minna á mikilvægi þess að drekka næginlegan vökva💧þá sérstaklega núna þar sem hitinn hér á Tenerife er búin að vera í hærri kantinum. Það er ekki bara nóg að drekka vel af vatni heldur þarf einnig að passa upp á að drekka drykki sem innihalda steinefni og sölt eins og Aquarius, Powerate og Gatorate, einnig eru til fleiri tegundir.
Einnig er hægt að vera með töflur með sér sem hægt er að leysa upp í vatni 💦 þar má nefna Resorb, Batterí og Nuun, en Nuun fæst í apótekum hér á Tenerife. Ef við drekkum of mikið af vatni er hætta á því að við skolum steinefnum og söltum út úr líkamanum og þá upplifum við ofþornun. Þar sem ég sjálf þarf auðvitað að passa þetta þá hef ég það sem reglu að drekka aðeins meira en ég tel mig þurfa að gera af vatni og af drykkum sem innihalda þau efni sem líkaminn þarf.
Farið vel með ykkur og njótið ykkar á Tenerife ☀️
Svana Andrea, hjúkrunarfræðingur

12.05.2023
12/05/2023

12.05.2023

05/05/2023

Here are some ways to ↘️ your cancer risk:
🚭 Don't use to***co
🏊‍♂️ Exercise regularly
🍅 Eat healthy foods
☀️ Avoid strong sunlight for prolonged periods
🥃 Drink less alcohol

Let's beat cancer!

05/05/2023

Too much salt and sugar is not good for our health.

Give yourself some portions of fruit and vegetables 🍏🍇🥕🥦🍅 every day and make sure your blood pressure is in check.

26/04/2023

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um nokkrar læknastofur og sjúkrahús hér á Tenerife. Ég þekki mismikið til þeirra.

Bæði Dr. De La Flor og Villar e Ibarrra eru einkareknar læknastofur sem ég mæli með og hef góða reynslu af. Mikilvægt er að taka vegabréfið með sér, misjafnt hvað kostar að fara til læknis en ef fólk er með ferðatryggingu þarf að taka kvittun og þá er hægt að fá endurgreitt frá tyggingunum.

VILLAR E IBARRA
Residencial El Camisón Local 32,
38660 Playa Las Americas
Sími: +34 922 77 78 70
- Kostar um 90€ -

DR. DE LA FLOR
Avenida Eugenio Dominguez Afonso,
38660 Adeje
Sími: +34 697 888 666
Talar góða ensku - Kostar um 50€ -

Quirón sjúkrahúsið er á Adeje og er einkarekið, þarf að hafa samband við tryggingarnar áður en farið er þar inn, en hægt er að greiða 250 € og fá svo endurgreitt frá tryggingunum. Ég er með tengiliðil á þessu sjúkrahúsi sem auðveldar allt ferlið.

HOSPITAL QUIRÓNSALUD COSTA ADEJE
Urbanización San Eugenio,
38660 Adeje
Sími: +34 922 752 626
- Kostar um 250€ -

HOSPITEN SUR
Calle Siete Islas, 8
38660 Arona
Sími: +34 922 75 00 22
- Kostar um 250€ -

Ríkisreknarstofnanir taka á móti bláa kortinu (frá sjúkratryggingum Íslands) og ekki þarf að greiða neitt, hafa vegabréfið meðferðis. Stundum hætta á tungumála örðugleikum.

CENTRO DE SALUD LOS CRISTIANOS
Avenida Juan Carlos I, 12,
38650 Arona
Sími: +34 922 787 840

Hospital del Sur
Carretera de Arona, El Mojón,
38650 Arona
Sími: +34 922 174 744 / +34 922 174 745

28/03/2023

Hjúkrunarfræðingur á Tenerife ; Hjúkrunarþjónusta ; Svana Andrea ; hjúkka Tenerife

Logo ✔️
18/03/2023

Logo ✔️

Dirección

Adeje

Notificaciones

Sé el primero en enterarse y déjanos enviarle un correo electrónico cuando M a n n G Æ S K A publique noticias y promociones. Su dirección de correo electrónico no se utilizará para ningún otro fin, y puede darse de baja en cualquier momento.

Contacto El Consultorio

Enviar un mensaje a M a n n G Æ S K A:

Compartir

Share on Facebook Share on Twitter Share on LinkedIn
Share on Pinterest Share on Reddit Share via Email
Share on WhatsApp Share on Instagram Share on Telegram