11/03/2026
Lykillinn að líkamlegri vellíðan 🫶🏻
Bandvefslosun – Boltanudd
Hefst 16.mars
4 vikur - 1x í viku
Mánudagar kl.16:30 ( 60 mín )
Verð kr. 14.000
Hvalasafnið Húsavík
Skráning á tonalind.is
Bandvefurinn er ómissandi hluti líkaman sem heldur öllu saman, veitir stuðning og er lykillinn að góðum hreyfanleika. Hann hefur áhrif á skynjun, styrk, jafnvægi og vellíðan. Þegar bandvefur stífnar upp hefur það áhrif á hreyfanleika í liðum og vöðvum, getur valdið verkjum og óþægindum í vöðvum og liðum.
Tíminn hentar sérstaklega vel fyrir þá sem vilja upplifa
Betri hreyfifærni og bætta líkamsstöðu
Betri svefn og minni þreytu
Minni spennu og stirðleika í háls, herðum, mjöðmum og mjóbaki
Róandi og endurnærandi hreyfingu
Tímarnir er rólegir og henta öllum — hvort sem þú ert byrjandi, íþróttaiðkandi eða einfaldlega vilt slaka á.