Nina time

Nina time Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Nina time, Health & Wellness Website, Reykjavíkurvegur 68, Hafnarfjörður.

Nína er núvitundarkennari, með BA í sálfræði og diplóma gráðu í jákvæðri sálfræði

Nina is a mindfulness teacher with a BA in psychology and a diploma in positive psychology

Sjávaríbúð til sölu í Hafnarfirði sem skartar dásamlegu útsýni! Íbúðin er á fyrstu hæð og útsýnið þaðan er óskert yfir s...
02/02/2026

Sjávaríbúð til sölu í Hafnarfirði sem skartar dásamlegu útsýni!

Íbúðin er á fyrstu hæð og útsýnið þaðan er óskert yfir sjóndeildarhringinn, hafið og flóann til suðurs og vesturs 🧡

Nánar hér: https://fasteignir.visir.is/property/976196

06/04/2021

Fjarnámskeið: Núvitund gegn streitu. Gæti þetta verið eitthvað fyrir þig? 🧐

Námskeiðið, Núvitund gegn streitu (Mindfulness Based Stress Reduction - MBSR), er fyrsta og eitt mest rannsakaða núvitundarnámskeið í heilbrigðiskerfum vestrænna þjóða. Það hefur verið notað víða um heim, gegn ýmis konar streitu eða til að bæta líðan og lífsgæði.

Kynningarfundur er miðvikudaginn 14. apríl kl. 19:00-20:30

Tímar námskeiðsins eru eftirfarandi:
Tími 1. kl. 19:00-21:30, miðvikudaginn 21. apríl
Tími 2. kl. 19:00-21:30, miðvikudaginn 28. apríl
Tími 3. kl. 19:00-21:30, miðvikudaginn 5. apríl
Tími 4. kl. 19:00-21:30, miðvikudaginn 12. maí
Tími 5. kl. 19:00-21:30, miðvikudaginn 19. maí
Tími 6. kl. 19:00-21:30, miðvikudaginn 26. maí
Þögli dagurinn - kl. 9:00-16:00, laugardaginn. 29. maí.
Tími 7. kl. 19:00-21:30, miðvikudaginn 2. júní
Tími 8. kl. 19:00-21:30, miðvikudaginn 9. júní

Námskeiðið er byggt á reynslunámi þar sem þátttakendur læra með því að prófa. Hvatt er til umræðna en enginn þvingaður til að tjá sig. Allir eru hvattir til að hlúa að sér og taka ákvarðanir með sína velferð og vellíðan í huga. Mikið er um núvitundar æfingar, svo sem að beina athyglinni að líkamanum, hugsunum, tilfinningum, hreyfingum, teygjum o.s.frv. Allt sem fram fer á námskeiðinu er valkvætt og má aðlaga að þátttakendum. 🌸

Stefanía Halldórsdóttir, eða Nína, eins og hún er gjarnan kölluð, kennir námskeiðið undir handleiðslu frá Bangor háskólanum í Bretlandi. Nína hefur sótt mörg námskeið til að mennta sig sem núvitundarkennari, þar á meðal MBSR specialist námskeiðið (Bangor háskólinn í Bretlandi). Önnur menntun sem Nína hefur er BA gráða í sálfræði (HÍ), diplóma gráða í jákvæðri sálfræði (EHÍ), markþjálfa nám (HR) og þrautseigju og áfallafræði (CRM, TRM1 og TRM2 frá Trauma Resource Institute). Þetta námskeið er hluti af námi hennar við Bangor háskólann í Bretlandi og er því ekki á fullu verði en MBSR námskeið kosta almennt 68.000 kr. Námskeiðið er í dag í boði á 30.000 kr.

Innifalið er handbókin og samtalstími með Nínu sem á sér stað helst á milli kynningarfundar og námskeiðsins. Samtalstíminn getur átt sér stað annað hvort á netinu eða á skrifstofu Nínu hjá Miðstöð Sálfræðinga, Bæjarhrauni 6, Hafnarfirði.

Námskeiðið fer fram á Zoom, það samanstendur af átta tímum, 2,5 klst í senn, og einum heilum degi sem fer að mestu fram í þögn. Dagsetningar og tímasetningar eru hér fyrir neðan.

Þetta er viðamikið námskeið og hentar vel þeim sem vilja vinna að því að bæta líðan sína og lífsgæði.

Mælt er með um klukkustundar heimavinnu 6 daga vikunnar, að mestu leiti í formi núvitundaræfinga. Þetta er tími sem þátttakendur gefa sjálfum sér í þeim tilgangi að kynnast sjálfum sér betur og æfa sig í því að vera til staðar, hér og nú, fyrir sig og sína.

Nína leiðir þetta námskeið með tilliti til þess hverjir sækja það. Ef þátttakendur eru trúaðir gæti hún byrjað og endað tíma og æfingar með stuttri bæn, ritningarlestri eða notað stutta þögn þar sem þeir sem vilja geta lagt stundina í Guðs hendur.

Sætaframboð er takmarkað, hægt er að skrá sig með því að senda fullt nafn, símanúmer og netfang í skilaboð á Ninatime. Gott er að taka fram hvort um er að ræða skráningu á kynningarfundinn (0kr.) eða bæði kynningarfundinn og námskeiðið (30.000 kr.).

Frekari upplýsingar fást hjá Nínu:
Sími: 8553111
Vefpóstur: nina@ninatime.com
Facebook skilaboð: Ninatime FB síðan - þar má einnig finna umsagnir þátttakenda sem setið hafa þetta tiltekna námskeið hjá Nínu

24/02/2021

Örnámskeið um núvitund á Zoom 👏

Hvað er núvitund?
Hvað er hún ekki?
Af hverju er hún svona vinsæl?

Námskeiðin samanstanda af litlum hópum, þannig að þátttakendur hafa tök á að prófa og spyrja, en það er að sjálfsögðu valfrjást. Næsta námskeið er mánudaginn 1. mars. kl. 10-13 og er gjaldið 4000 kr.

Skráning og frekari fyrirspurnir í einkaskilaboðum 💛

❤️
18/02/2021

❤️

Einföld mynd sem segir svo mikið 🌸
03/11/2020

Einföld mynd sem segir svo mikið 🌸

02/11/2020

Fjarnámskeið: Núvitund gegn streitu. Gæti þetta verið eitthvað fyrir þig? 🧐

Námskeiðið, Núvitund gegn streitu (Mindfulness Based Stress Reduction / MBSR), er fyrsta og eitt mest rannsakaða núvitundarnámskeið heilbrigðiskerfa vestrænna þjóða. Það byrjaði 1979 í Massachusetts í Bandaríkjunum sem úrræði fyrir þá sem voru að útskrifast af spítalanum með ólæknandi verki eða sjúkdóma og þurftu að lifa með þeirri streitu. Það hefur síðan þá verið notað gegn ýmis konar streitu eða til að bæta líðan og lífsgæði víða um heim 🌺

Stefanía Halldórsdóttir, eða Nína, eins og hún er gjarnan kölluð, kennir námskeiðið undir handleiðslu frá Bangor háskólanum í Bretlandi. Nína hefur sótt mörg námskeið til að mennta sig sem núvitundarkennari, þar á meðal MBSR specialist námskeiðið (Bangor háskólinn í Bretlandi). Önnur menntun sem Nína hefur er BA gráða í sálfræði (HÍ), diplóma gráða í jákvæðri sálfræði (EHÍ), markþjálfa nám (HR) og áfallafræði (CRM frá Trauma Resource Institute). Þetta námskeið er hluti af námi hennar við Bangor háskólann í Bretlandi og er því ekki á fullu verði en MBSR námskeið kosta oft 68.000 kr. Þetta námskeið er í dag í boði á 15.000 kr.
Námskeiðið fer fram á Zoom, átta skipti tveir og hálfur tími í senn og einn heill dagur sem fer að mestu fram í þögn í seinni hluta námskeiðs. Dagsetningar og tímasetningar eru hér fyrir neðan.

Námskeiðið er byggt upp á reynslunámi þar sem þátttakendur læra með því að prófa. Hvatt er til umræðna en enginn þvingaður til að tala. Allir eru hvattir til að hlúa að sér og taka ákvarðanir með sína velferð og vellíðan í huga. Mikið er um núvitundar æfingar, svo sem að beina athyglinni að líkamanum, hugsunum, tilfinningum, hreyfingum, teygjum o.s.frv. Allt sem fram fer á námskeiðinu er valkvætt og má aðlaga að þátttakanda.
Þetta er viðamikið námskeið og hentar vel þeim sem vilja vinna að því að bæta líðan sína og lífsgæði.

Tímar námskeiðsins eru eftirfarandi:

Fim. 12. nóv. kl. 10:00-12:30
Fim. 19. nóv. kl. 10:00-12:30
Fim. 26. nóv. kl. 10:00-12:30
Fim. 4. des. kl. 10:00-12:30
Fim. 10. des. kl. 10:00-12:30
Fim. 17. des. kl. 10:00-12:30
Þri. 5. jan. - Þögli dagurinn, kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00
Fim. 7. jan. kl. 10:00-12:30
Fim. 14. jan. kl. 10:00-12:30

Mælt er með um klukkustundar heimavinnu 6 daga vikunnar, að mestu leiti í formi núvitundaræfinga. Þetta er tími sem þátttakendur gefa sjálfum sér í þeim tilgangi að kynnast sjálfum sér betur og byggja sig upp.

Nína leiðir þetta námskeið með tilliti til þess að margir sem sækja það eru trúaðir en allir eru velkomnir. Námskeiðinu hefur ekki verið breytt en Nína byrjar og endar námskeiðið og sumar núvitundar æfingarnar með stuttri bæn eða ritningarlestri.

Sætaframboð er takmarkað, hægt er að skrá sig með því að senda fullt nafn, símanúmer og netfang í skilaboð á Nina time.

01/11/2020

Mikið til í þessu 💙

01/11/2020

Það getur verið gott að vera með fullan verkfærakassann þegar hugurinn fer á flakk 💛

Address

Reykjavíkurvegur 68
Hafnarfjörður
220

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Nina time posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Share on Facebook Share on Twitter Share on LinkedIn
Share on Pinterest Share on Reddit Share via Email
Share on WhatsApp Share on Instagram Share on Telegram