Sálarró

Sálarró Viðfangsefni okkar sálfræðinga eru áfallastreita, sorg, kvíði/þunglyndi, erfið tengsl og sa

Elsku sál....þú mátt vera viss um að líkami þinn er stórkostlegur. Treystu á heilunarmátt hans.Þuríður Ólafía Hjálmtýsdó...
19/04/2024

Elsku sál....þú mátt vera viss um að líkami þinn er stórkostlegur. Treystu á heilunarmátt hans.

Þuríður Ólafía Hjálmtýsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði.
https://salarro.is







líðan

09/06/2023

Indæla sál....

Leiða sárin þín til vaxtar?

Mismunurinn á þeim sárum sem festast og smætta þig og þeirra sem leiða til vaxtar er hvort þú notar sárin til þess að efla þig, breyta einhverju í heiminum eða leggja eitthvað að mörkum.

Munurinn á áfalla-streitu og áfalla-ávinningi er:
Tengsl: Leiðir sárið, virðingarleysið eða reiðin til þess að þú tengist dýpra sjálfri (um/u) þér, heiminum, tilfinningu fyrir lífinu, æðri tilgangi, Guði eða ekki?
Samkennd: Leiðir sárið til meiri samkenndar í eigin garð og annarra eða ekki?
Framlag: Leiðir sárið til þess að þú leggur eitthvað að mörkum til betra lífs fyrir þig sjálfa (n/t) eða aðra eða ekki?

Þuríður Ólafía Hjálmtýsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði.
https://salarro.is/salfraedimedferd-daleidsla/







líðan

Elskulega sál...Láttu þér þykja vænt um sárin þín!Við berum öll með okkur sár bernskunnar. Með tímanum getur þú umbreytt...
02/06/2023

Elskulega sál...

Láttu þér þykja vænt um sárin þín!

Við berum öll með okkur sár bernskunnar. Með tímanum getur þú umbreytt sárum þínum í gjafir bernsku þinnar. Það sem hefur valdið sál þinni ama getur orðið uppspretta fegurðar þinnar. Fegurð sálar þinnar getur leitt til köllunar sem heilar þig og aðra.

Þuríður Ólafía Hjálmtýsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði.
https://salarro.is/salfraedimedferd-daleidsla/







líðan

Elsku þú...Merki þess er að þú hefur náð að losa þig við þjáningu áfallanna sem hefur búið innra með þér. Þá ert þú hætt...
26/05/2023

Elsku þú...

Merki þess er að þú hefur náð að losa þig við þjáningu áfallanna sem hefur búið innra með þér. Þá ert þú hætt(ur) að reyna að hugsa þig út úr því sem er óhugsanlegt. Þú hefur sleppt tökum á áföllunum, líkt og að sleppa hendinni af þungri blöðru. Blaðran hefur horfið út í almættið og umbreyst þar í kærleika. Þú ert frjáls vegna þess þér há engar erfiðar tilfinningar lengur. Þráhyggju hugsanir hafa liðið frá þér og há þér ekki lengur. Þá hefur þú náð heilsu.

Það er munur á þannig heilsu og því að lifa áföllin af. Ef þú hefur einungis lifað af áföllin getur þú orðið „fórnarlamb“, sem er eitt versta hlutskipti sem þú getur ætlað þér í lífinu. Þá heldur heilinn þinn áfram að endurhugsa erfiðleikana og fylgja eftir áfallaviðbrögðum líkamans tilfinningalega og líkamlega. Það er eins og þú sért að skjóta þig aftur og aftur með sömu kúlunni. Þráhyggju hugsanir halda áfram vegna þess að þú hefur ekki náð að losa þjáninguna úr líkama þínum.

Það er ekki auðvelt að losa sig frá áfallareynslu. Fyrsta skrefið er að ákveða að vera ekki „fórnarlamb“ og að taka ábyrgð á eigin lífi. Þetta eru stór skref og eitthvað sem þú getur ákveðið sjálf(ur). Síðan er að vinna að þessu marki. Þú getur það vegna þess að líkami þinn gerir allt til að þér megi líða sem best. Það er hann sem kom þér í gegn um áföllin. Það er hann sem getur komið þér út úr þeim. Líkami þinn er stærsta „efnaverksmiðja“ sem til er og getur allt. Hann vill þér alltaf allt hið besta. Hjálpaðu honum, þú getur það!!!

Þuríður Ólafía Hjálmtýsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði.







líðan

Elsku sál...Viltu auka vellíðan í líkama þínum? Eða hjálpa líkama þínum að takast á við sársauka?Komdu þér þægilega fyri...
19/05/2023

Elsku sál...

Viltu auka vellíðan í líkama þínum?
Eða hjálpa líkama þínum að takast á við sársauka?

Komdu þér þægilega fyrir og lokaður augunum.
Settu aðra hönd þína á svæði líkamans þar sem þú finnur til svo sem meltingarfæranna.
Þú munt taka eftir að því að þetta leiðir til þess að þú finnur tilfinningu þess að hlýna.
Ef þú getur ekki hlýjað höndum þínum, hafðu engar áhyggjur, einbeittu þér þess í stað að því að auka þægindi.
Meðan hendi þín hvílir á svæði meltingarfæranna getur þú ekki hindrað hlýjuna frá því að aukast, jafnvel þó þú reyndir.
Settu nú hina hendina ofan á þá fyrri þannig að hlýjan aukist enn frekar.
Notaðu nú afl hugans til þess að auka enn frekar hlýjuna.
Hugsaðu um eitthvað sem hjálpar þér að auka hlýju handa þinna.
Hugsaðu þér til dæmis að þú yljir hendur þínar fyrir framan arineld.
Mundu að rannsóknir hafa sýnt að hægt er að örva hlýju handanna með dáleiðslu.
Notaðu afl hugans til þess að örva hlýjuna.
Notaður afl hugans til þess að örva hlýjuna enn frekar.

Sjáðu nú fyrir þér skýfu sem þú getur snúið og snúðu skýfunni til þess að örva hlýjuna.

Hlýjan frá höndum þínum breiðist nú, í gegn um vöðva þína, gegn um magavegginn,
beint að því svæði þar sem óþægindin eru.
Þegar hlýjan eykst, slakna og róast meltingarfærin
Hlýjan og þægindin breiðast um meltingarfærin og hjálpa til að lækna hvaða einkenni sem þú gætir haft.

Minntu sjálfan þig á það að hvenær sem þú þarft á að halda getur þú róað og örvað vellíðan í meltingarfærunum einungis með því að minnast þeirrar hugmyndar sem var þér hjálplegust.

3-2-1 Opnaðu augun og njóttu betri líðan.

Þuríður Ólafía Hjálmtýsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði.
https://salarro.is/salfraedimedferd-daleidsla/







líðan

05/05/2023

Kæra sál...

Þarftu að kveðja náið samband?

Ef þú þarft að kveðja náið samband getur hjálpað að skrifa bréf til viðkomandi. Það getur hjálpað þér þó svo þú komir bréfinu aldrei til þess sem það er skrifað til, það er algjörlega þitt val.

Bréfið þitt gæti innihaldið eftirfarandi eða hvað annað sem þú vilt koma á framfæri:

Hver fannst þér tilgangurinn í upphafi sambandsins eða þegar á leið?
Hverjir fundust þér vera kostir sambandsins?
Hvaða vandamál upplifðir þú í sambandinu? Var sambandið þér skaðlegt á einhvern hátt?
Hvað minnir þig á sambandið (fólk, staðir, athafnir, tímar dags, kringumstæður o.s.frv.)?
Hvaða áhrif hefur sambandið haft á þig?
Hvernig líður þér þegar þú hugsar um að sleppa tökum á sambandinu?
Hvað lærðir þú af reynslu þinni í sambandinu?
Hvað munt þú öðlast og hvað munt þú missa við lok sambandsins?

Fullvissaður þig um að þú hafir sagt allt sem þú hefur þörf fyrir áður en þú undirritar bréfið þitt.

Þuríður Ólafía Hjálmtýsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði.
https://salarro.is/salfraedimedferd-daleidsla/







líðan

28/04/2023

Fallega sál...

Hver ert þú?
Hvaðan kemur þú?
Hvar ertu núna?
Hvað dreymir þig um?
Hvert ertu að fara?
Hvaða gjafir viltu gefa?

Þuríður Ólafía Hjálmtýsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði.
https://salarro.is/salfraedimedferd-daleidsla/







líðan

Address

Skeifan 19, 2 Hæð
Reykjavík

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sálarró posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Sálarró:

Share

Share on Facebook Share on Twitter Share on LinkedIn
Share on Pinterest Share on Reddit Share via Email
Share on WhatsApp Share on Instagram Share on Telegram