Asana Jóga

Asana Jóga 🔗https://asanajoga.is🌷Hér deili ég með ykkur viðburðum, námi og fræðslu um jógatengd málefni.

25/04/2026

Sumarkortið er nú á tilboði til 1. maí!
Kortið gildir allt sumarið, frá 6. maí til 20. ágúst.

Með sumarkortinu færðu aðgang að fjölbreyttri stundaskrá með fullt af jógatímum, ásamt spennandi viðburðum og námskeiðum í allt sumar 🌿

25/04/2026

Það er svo gott fyrir líkamann að fá að hanga👌

22/04/2026

Gleðilegt sumar ☀️☀️☀️

20/04/2026

Sumarkort 2026 ☀️☀️☀️
Takk fyrir að vera með okkur🙏
Nánari upplýsingar á asanajoga.is

18/04/2026
Descartes sagði: „I think, therefore I am“, en hann gerði sér líklega ekki grein fyrir því að taugakerfið þróast ekki fy...
15/04/2026

Descartes sagði: „I think, therefore I am“, en hann gerði sér líklega ekki grein fyrir því að taugakerfið þróast ekki fyrst og fremst í heilanum, heldur á rætur sínar í vefjum sem síðar mynda húð líkamans. Því mætti jafnvel segja: „I am, therefore I think.“

Við erum oft með marga bolta á lofti í huganum og hugsum stöðugt fram og til baka í tíma. Það getur leitt til þess að við verðum fjarræn, ótengd og upplifum líðan á borð við kvíða og þunglyndi.

Líkaminn geymir hins vegar lykilinn að því að kyrra hugann. Með því að staldra við, vera meðvitað aðgerðarlaus um stund og tengja hugann aftur við líkamann, geta farið að gerast magnaðir hlutir.

Við Unnur Einarsdóttir höfum í mörg ár verið að kenna Restorative jóga sem gengur einmitt út á að gera sem minnst, ekki vera með tónlist eða mikið tal, heldur leyfa fólki að dvelja með sjálfu sér og finna hvernig hugurinn róast smám saman þegar líkaminn hefur stoppað.

Mæli með að kíkja á þessa tilraun sem sýnt var frá í Kastljósi um daginn - um að gera ekkert í klukkustund.

Faðir þriggja drengja á Egilsstöðum borgaði í fyrra yfir tvær milljónir króna í ferðakostnað vegna þátttöku sona hans á íþróttamótum í Reykjavík. Formaður Hattar segir kostnað farinn að valda misskiptingu í íþróttaiðkun, dæmi séu um heimili sem hafi ekki tök á að ...

12/04/2026

Skráning hjá asanajoga.is

Saucha er ein af Niyama og þýðir hreinleiki.Í jóga snýst hreinleiki ekki aðeins um ytra umhverfi eða líkamlega umhirðu, ...
11/04/2026

Saucha er ein af Niyama og þýðir hreinleiki.

Í jóga snýst hreinleiki ekki aðeins um ytra umhverfi eða líkamlega umhirðu, heldur einnig um innra ástand okkar. Við ræktum saucha með því að skapa hreint og nærandi rými í kringum okkur, hlúa að líkamanum og gefa gaum að því sem við nærum hugann með.

Það má velta fyrir sér hvað „óhreinar“ hugsanir séu, en oft tengjast þær því sem dregur úr okkur orku, skapar ókyrrð eða fjarlægir okkur frá samkennd og mildi. Þegar við hins vegar veljum að hugsa vel til annarra, lifa í eins hreinu og heilnæmu umhverfi og mögulegt er, og ekki síst mæta okkur sjálfum með hlýju og virðingu, þá eykst vellíðan – bæði hjá okkur og þeim sem eru í kringum okkur.

🪷 Saucha minnir okkur á að hreinleiki er lifandi iðkun – frá líkama til hugar og út í lífið sjálft

10/04/2026

Address

Faxafen 10
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Asana Jóga posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Asana Jóga:

Share

Category