Leiðarvísir líkamans

Leiðarvísir líkamans Hér mun birtast fjölbreyttur fróðleikur um mannslíkamann með sérstakri áherslu á vinnuvistf

Þessi frétt frá Bretlandi sem birtist í lok janúar er ákaflega sláandi og þarf að vera öðrum samfélögum víti til varnaða...
17/02/2025

Þessi frétt frá Bretlandi sem birtist í lok janúar er ákaflega sláandi og þarf að vera öðrum samfélögum víti til varnaðar
Vaxandi truflanir eða seinkun á hreyfiþroska barna á borð við að eiga erfitt að ganga upp stiga, slakur bolstyrkur sem gerir barninu erfitt að sitja án stuðnings og ýmislegt þar fram eftir götunum virðast vera merki um neikvæðar afleiðingar mikilla samfélagslegra breytinga.

Mismunandi þættir eru taldir upp sem mögulegir orsakavaldar versnandi hreyfiþroska á borð við aukna skjánotkun, færri samverustundir foreldra og barna bæði vegna vaxandi framfærslukostnaðar og þ.a.l. þörf á lengri vinnudegi, vaxandi skjátíma foreldra og afleiðingar heimsfaraldurs Covid.

Rannsóknir hafa sýnt fram á sterk tengsl hreyfiþroska barna, námsárangurs og félagslegs þroska og því getur seinkaður hreyfiþroski barna haft veruleg áhrif á framtíð þeirra. Það er því til mikils að vinna fyrir foreldra og skólasamfélagið að beina sjónum sínum að örvun hreyfiþroska

Þrátt fyrir að leikskólakennarar séu miklir áhrifavaldar á hreyfiþroska barna og leikskólar almennt leggi mikið upp úr virkum leik og hreyfingu barna eru það samt foreldrar sem spila stærsta hlutverkið í þroska barna sinna og eru fyrirmyndir þeirra í leik og starfi.

Markviss örvun hreyfiþroska þarf ekki að vera flókin en hún krefst fyrst og fremst samverustunda foreldra með börnum sínum.
Hjá ungabörnum getur örvunin t.d. falist í að leika við barnið í magalegu, hvetja barnið til að teygja sig eftir dóti, skynörvun (nota t.d. hárbursta eða annað slíkt og strjúka yfir húðina), kitla osfrv. Sund er frábær hreyfing og samvera foreldra og barna á öllum aldri sem gefur nánd um leið og örvun.
Að ganga með barninu berfættu í grasi, sandi, vatni osfrv er góð þjálfun líkt og að ganga upp og niður brekkur, stiga og yfir hindranir
Göngur, fjallgöngur og almenn útivist er einnig nærandi, á sumrin D-vítamínbætandi og hafa rannsóknir sýnt að börn sem leika í náttúrulegu umhverfi frekar en manngerðu hafa sýnt fram á betra jafnvægi og samhæfingu og erum við á Íslandi því með einstakan náttúrulegan leikvöll til að aðstoða við hreyfiþroska barnanna okkar.

Ekki síst er mikilvægt að stjórnvöld fylgist vel með þessari þróun í gegnum rannsóknavinnu og sinni mikilvægu og markvissu forvarnarhlutverki með áberandi ráðgjöf og fræðslu til foreldra og starfsmanna leikskóla.

Fjórðungur barna sem hefja undirbúningsnám í grunnskóla á Bretlandseyjum er enn í bleyjum. Þá virðast mörg þeirra skorta styrk og hreyfigetu, sem kennarar rekja til mikillar skjánotkunar.

Góð skilaboð frá Landspítalanum í þessari mannskaðahálku. Farið varlega og passið beinin ykkar ❤️
04/12/2024

Góð skilaboð frá Landspítalanum í þessari mannskaðahálku. Farið varlega og passið beinin ykkar ❤️

Nú er umhleypingaveður með þíðu, bleytu og frosti sem gera gangstéttir glerhálar. Þá er tilvalið að taka mörgæsina sér til fyrirmyndar 🐧

Hafðu þessi einföldu skref í huga til að fyrirbyggja hálkuslys.

05/09/2024

📖Nýtt námskeið Bakskóla hefst þann 17. september næstkomandi að öllu óbreyttu og eru nokkur pláss laus

⏱️Bakskólinn er 4 vikna námskeið, 2 tímar í viku og verða tímar þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16.15

👩‍🏫Í upphafi hvers tíma er farið yfir ýmis konar fróðleik sem skiptir máli þegar verið er að kljást við bakverki, þ.á.m. líffærafræði hryggjar, góða líkamsstöðu og líkamsbeitingu, æskilegar vinnustellingar, einföld ráð til sjálfshjálpar, æskileg æfingaform til framtíðar og ýmsan áhugaverðan fróðleik um mannslíkamann.

🦶Þar á eftir er farið í markvissa líkamsstöðu- og líkamsbeitingarþjálfun ásamt styrktarþjálfun fyrir djúpu kvið- og bakvöðvana, liðkandi æfingar fyrir bakið, jafnvægisþjálfun og teygjur sem miða að því að draga úr álagi og mjóbaksverkjum.

👏Bakskólinn hentar vel einstaklingum sem hafa fundið fyrir bakverkjum, hvort sem er skamm- eða langvinnum og hafa margir upplifað marktæk jákvæð áhrif á verkjaupplifun með þátttöku í námskeiðinu. Örfá pláss eru laus á námskeiðinu sem byrjar 5. febrúar n.k. Endilega hafið samband á hildursi@gmail.com eða hér í einkaskilaboðum ef þið hafið áhuga og viljið frekari upplýsingar.

31/01/2024

📖Nýtt námskeið Bakskóla hefst í næstu viku.

⏱️Bakskólinn er 4 vikna námskeið, 2 tímar í viku.

👩‍🏫Í upphafi hvers tíma er farið yfir ýmis konar fróðleik sem skiptir máli þegar verið er að kljást við bakverki, þ.á.m. líffærafræði hryggjar, góða líkamsstöðu og líkamsbeitingu, æskilegar vinnustellingar, einföld ráð til sjálfshjálpar, æskileg æfingaform til framtíðar og ýmsan áhugaverðan fróðleik um mannslíkamann.

🦶Þar á eftir er farið í markvissa líkamsstöðu- og líkamsbeitingarþjálfun ásamt styrktarþjálfun fyrir djúpu kvið- og bakvöðvana, liðkandi æfingar fyrir bakið, jafnvægisþjálfun og teygjur sem miða að því að draga úr álagi og mjóbaksverkjum.

👏Bakskólinn hentar vel einstaklingum sem hafa fundið fyrir bakverkjum, hvort sem er skamm- eða langvinnum og hafa margir upplifað marktæk jákvæð áhrif á verkjaupplifun með þátttöku í námskeiðinu. Örfá pláss eru laus á námskeiðinu sem byrjar 5. febrúar n.k. Endilega hafið samband á hildursi@gmail.com eða hér í einkaskilaboðum ef þið hafið áhuga og viljið frekari upplýsingar.

👩‍🏫 Forvarnarfyrirlestur í dag fyrir 10. bekk GRV. 8️⃣. Skiptið sem GRV fær fyrirlestur í tengslum við alþjóðadag sjúkra...
15/09/2023

👩‍🏫 Forvarnarfyrirlestur í dag fyrir 10. bekk GRV.

8️⃣. Skiptið sem GRV fær fyrirlestur í tengslum við alþjóðadag sjúkraþjálfunar sem var 8. september síðastliðinn.

🦶 Farið er yfir m.a. hvað sjúkraþjálfarar gera, grunnþætti góðrar líkamsstöðu, vinnustellingar og líkamsbeitingu ásamt því hvernig andleg líðan hefur áhrif á verki

💪Ekkert smá flottur hópur af áhugasömum nemendum sem voru með svör á reiðum höndum við flestum mínum spurningum.

12/09/2023

📖Nýtt námskeið Bakskóla hefst í næstu viku.

⏱️Bakskólinn er 4 vikna námskeið, 2 tímar í viku.

👩‍🏫Í upphafi hvers tíma er farið yfir ýmis konar fróðleik sem skiptir máli þegar verið er að kljást við bakverki, þ.á.m. líffærafræði hryggjar, góða líkamsstöðu og líkamsbeitingu, æskilegar vinnustellingar, einföld ráð til sjálfshjálpar, æskileg æfingaform til framtíðar og ýmsan áhugaverðan fróðleik um mannslíkamann.

🦶Þar á eftir er farið í markvissa líkamsstöðu- og líkamsbeitingarþjálfun ásamt styrktarþjálfun fyrir djúpu kvið- og bakvöðvana, liðkandi æfingar fyrir bakið, jafnvægisþjálfun og teygjur sem miða að því að draga úr álagi og mjóbaksverkjum.

👏Bakskólinn hentar vel einstaklingum sem hafa fundið fyrir bakverkjum, hvort sem er skamm- eða langvinnum og hafa margir upplifað marktæk jákvæð áhrif á verkjaupplifun með þátttöku í námskeiðinu. Nokkur pláss eru laus á námskeiðinu sem byrjar 18. september n.k. Endilega hafið samband á hildursi@gmail.com eða hér í einkaskilaboðum ef þið hafið áhuga og viljið frekari upplýsingar.

Hér mun birtast fjölbreyttur fróðleikur um mannslíkamann með sérstakri áherslu á vinnuvistf

Í dag, 8. september, er Alþjóðadagur sjúkraþjálfunar. Í ár er áherslan lögð á að fræða fólk um gigt og hvernig sjúkraþjá...
08/09/2023

Í dag, 8. september, er Alþjóðadagur sjúkraþjálfunar. Í ár er áherslan lögð á að fræða fólk um gigt og hvernig sjúkraþjálfarar geta aðstoðað við að bæta lífsgæði, færni og sjálfstæði einstaklinga með gigt

Leiðarvísir líkamans stefnir á að hefja nýtt námskeið í Bakskóla í næstu viku. Bakskólinn er fjögurra vikna námskeið sem...
30/01/2023

Leiðarvísir líkamans stefnir á að hefja nýtt námskeið í Bakskóla í næstu viku. Bakskólinn er fjögurra vikna námskeið sem er uppsett af 2 tímum í vikum. Í upphafi hvers tíma eða í c.a. 15 mínútur er farið yfir ýmis konar fróðleik sem skiptir máli þegar verið er að kljást við bakverki, þ.á.m. líffærafræði hryggjar, góða líkamsstöðu og líkamsbeitingu, æskilegar vinnustellingar, einföld ráð til sjálfshjálpar, æskileg æfingaform til framtíðar og ýmsan áhugaverðan fróðleik um mannslíkamann.
Þar á eftir er farið í markvissa líkamsstöðu- og líkamsbeitingarþjálfun ásamt styrktarþjálfun fyrir djúpu kvið- og bakvöðvana, liðkandi æfingar fyrir bakið, jafnvægisþjálfun og teygjur.
Bakskólinn hentar vel einstaklingum sem hafa fundið fyrir bakverkjum, hvort sem er skamm- eða langvinnum og hafa margir upplifað marktæk jákvæð áhrif á verkjaupplifun með þátttöku í námskeiðinu. Pláss er fyrir 10 nemendur á fyrsta námskeiðinu. Endilega hafið samband í einkaskilaboðum ef þið hafið áhuga.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir sjúkraþjálfari Bakskólinn á erindi við marga 14. mars 2019 Facebook Twitter Email Print Hildur Sólveig Sigurðardóttir sjúkraþjálfari hefur frá því í nóvember á síðasta ári starfrækt bakskóla í Eldeyjarsalnum í Goðahrauni en hún er að ljúk...

Víða er flughált í dag. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að fara afar varlega, nota mannbrodda eða grófan skóbúnað ef ma...
03/01/2023

Víða er flughált í dag. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að fara afar varlega, nota mannbrodda eða grófan skóbúnað ef maður þarf nauðsynlega að vera á ferðinni við slíkar aðstæður. Salt á gönguleiðir er einnig mikilvægt. Byltur í hálku leiða gjarnan af sér beinbrot, samfallsbrot, brjósklos eða slæm höfuðhögg og geta verið barnshafandi konum sérstaklega hættulegar. Endurhæfing eftir slíka byltu getur verið löng og erfið. Passið vel upp á ykkur í hálkunni 🥰

Hildur Sólveig flutti fyrirlestur fyrir hóp eldri borgara í Kviku síðasta mánudag þar sem lögð var áhersla á góða líkams...
09/11/2022

Hildur Sólveig flutti fyrirlestur fyrir hóp eldri borgara í Kviku síðasta mánudag þar sem lögð var áhersla á góða líkamsstöðu, líkamsbeitingu, byltuforvarnir og annan fróðleik tengdan líkamanum.

Á alþjóðadegi sjúkraþjálfara mætti Hildur Sólveig Sigurðardóttir í Grunnskóli Vestmannaeyja og flutti árlegan fyrirlestu...
08/09/2022

Á alþjóðadegi sjúkraþjálfara mætti Hildur Sólveig Sigurðardóttir í Grunnskóli Vestmannaeyja og flutti árlegan fyrirlestur um störf sjúkraþjálfara, áhugaverðar staðreyndir um mannslíkamann, líkamsstöðu, líkamsbeitingu og margt fleira. Hún fékk líkt og ávallt góðar móttökur frá nemendum og starfsfólki en þetta var í sjöunda skiptið sem fyrirlesturinn er haldinn fyrir nemendahóp GRV.

Takk fyrir okkur Ísafjörður! Í síðustu viku fengu 9. og 10. bekkur grunnskólans á Ísafirði fyrirlestur Leiðarvísis líkam...
24/03/2022

Takk fyrir okkur Ísafjörður! Í síðustu viku fengu 9. og 10. bekkur grunnskólans á Ísafirði fyrirlestur Leiðarvísis líkamans þegar Hildur Sólveig Sigurðardóttir fræddi unga fólkið um líkamsstöðu, líkamsbeitingu, góðar vinnustellingar ofl. Nemendur voru áhugasamir og kennarar ánægðir með erindið. Hlökkum til að halda áfram að breiða út fagnaðarerindið um grunnskóla landsins!

Address

Hrauntún 44
Vestmannaeyjar
900

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3546973312

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leiðarvísir líkamans posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Leiðarvísir líkamans:

Share

Share on Facebook Share on Twitter Share on LinkedIn
Share on Pinterest Share on Reddit Share via Email
Share on WhatsApp Share on Instagram Share on Telegram